Um Horn

Horn er alhliða fjárfestingarfélag sem fjárfestir jafnt í skráðum sem óskráðum verðbréfum í flestum atvinnugreinum. Horn hefur undanfarin ár skilað góðri arðsemi af fjárfestingum sínum. Efnahagsreikningur Horns er um 30 ma.kr. í dreifðu eignasafni og er meirihluti eigna félagsins með tekjur í erlendri mynt. Mikil áhersla er lögð á vandaða greiningu á þeim félögum sem eru í eignasafni Horns á hverjum tíma. Tilkynnt hefur verið að félagið verði skráð í Kauphöll Íslands síðar á þessu ári.

Framkvæmdarstjóri félagsins er Hermann Már Þórisson.


Fjárfestingarstefna | StjórnSkipuritSamþykktir | Fyrirvarar

Tengt efni

Fyrir fjárfesta