Helstu óskráðar eignir

Eimskip

Eimskip

Eimskip var fyrsta íslenska skipafélagið en fyrirtækið hefur þróast mikið frá stofnun þess árið 1914. Markmið Eimskips er að veita viðskiptavinum sínum alhliða flutningaþjónustu sem byggir á áreiðanlegu og skilvirku siglingakerfi á Norður-Atlantshafssvæðinu og frystiflutningsmiðlun um allan heim. Eimskip myndar þannig trausta og órjúfanlega keðju flutninga frá sendanda til móttakanda. Eimskip starfar í alþjóðlegu umhverfi og rekur nú starfsstöðvar í 15 löndum utan Íslands.

Horn á 3,95% hlut í Eimskip.

Skoða vef Eimskipa


Eyrir Invest

Eyrir Invest

Eyrir Invest er alþjóðlegt fjárfestingarfélag sem einbeitir sér að fjárfestingum í evrópskum fyrirtækjum, aðallega í Norður Evrópu. Félagið leggur megináherslu á iðnfyrirtæki sem eiga möguleika á að marka sér skýra leiðtogastöðu á heimsvísu innan sinnar atvinnugreinar. Stefna Eyris er að vera leiðandi fjárfestir í þeim félögum sem fjárfest er í og að fjárfesta hverju sinni í fáum félögum til lengri tíma án fyrirfram ákveðins tímaramma. Helstu fjárfestingar Eyris eru Marel og Stork.

Horn á 12,5% hlut í Eyri Invest.

Skoða vef Eyris Invest


Oslo Bors VPS Group

Oslo Bors VPS Group

Oslo Bors VPS Group samanstendur af fjórum fyrirtækjum, þ.e. kauphöll, verðbréfaskráningu, uppgjörsþjónustu og markaðslausnum. Félagið býður upp á markaðstorg fyrir skráningu og viðskipti með verðbréf, skráningu á eignarhaldi og uppgjöri verðbréfa, sem og markaðsgögn og veflausnir. Félagið er í eigu Oslo Bors VPS Holding ASA og viðskipti með það fer fram á opnum tilboðsmarkaði.

Horn á 6,54% hlut í Oslo Bors VPS Group.

Skoða vef Oslo Bors VPS


Promens

Promens

Promens er leiðandi á heimsvísu í framleiðslu plastafurða. Félagið rekur verksmiðjur í Evrópu, Norður-Ameríku, Asíu og Afríku. Fyrirtækið er með breiða framleiðslulínu sem inniheldur m.a. umbúðir fyrir matvæli, snyrtivörur, kemísk efni af ýmsu tagi og lyf. Þar að auki þjónustar Promens fjölda atvinnugreina, t.a.m. matvinnslufyrirtæki, efnaverksmiðjur, lyfjaframleiðendur og framleiðendur bíla, þungavinnuvéla og raftækja. Samkeppniseftirlitið tók sumarið 2011 ákvörðun varðandi eignarhald Horns og Promens og setti því tiltekin skilyrði sem m.a. lúta að birtingu upplýsinga um Horn, Promens og Tempru. Upplýsingar þessar má finna hér (pdf). Þá gerði Samkeppniseftirlitið í mars 2012 sátt við Horn, FSÍ og Landsbankann vegna sameiginlegra yfirráða þessara aðila yfir Promens, þar sem sett eru sambærileg skilyrði.

Horn á 49,9% hlut í Promens.

Skoða vef Promens


Stoðir

Stoðir

Stoðir er eignarhaldsfélag sem meðal annars á Tryggingamiðstöðina (TM) og 40% hlut í hollenska drykkjarvöruframleiðandann Refresco, auk eignarhluta og hagsmuna í öðrum félögum

Horn á 6,7% af A bréfum og 42,6% af B bréfum í Stoðum.

Skoða vef Stoða


Tengt efni

Fjárfestingarstefna Horns