Fjárfestar
Það er stefna Horns að kynna opinberlega fréttir af starfsemi og rekstri félagsins, og upplýsa þannig fjárfesta, greinendur og aðra sem láta sig félagið varða um þau atriði sem máli skipta til að þeir geti lagt mat á stöðu félagsins og framtíðarhorfur þess.
Horn er alhliða fjárfestingarfélag sem fjárfestir jafnt í skráðum sem óskráðum verðbréfum í flestum atvinnugreinum (sjá eignasafn). Horn hefur undanfarin ár skilað góðri arðsemi af fjárfestingum sínum. Efnahagsreikningur Horns er um 30 ma.kr. í dreifðu eignasafni og er meirihluti eigna félagsins með tekjur í erlendri mynt. Mikil áhersla er lögð á vandaða greiningu á þeim félögum sem eru í eignasafni Horns á hverjum tíma. Tilkynnt hefur verið að félagið verði skráð í Kauphöll Íslands síðar á þessu ári.
Framkvæmdarstjóri félagsins er Hermann Már Þórisson.
Fréttir og tilkynningar
- 06.01.2012 10:47Promens hefur lokið endurfjármögnun
- 30.12.2011 16:29Fjölgun hluthafa Eyris Invest ehf.
- 30.12.2011 13:36Eyrir Invest tryggir fjármögnun til lengri tíma
- 18.11.2011 17:42Breytingar gerðar á stjórn Horns
- 17.11.2011 12:03Horn selur í Eyri Invest
- 26.10.2011 13:20Kaup á hlutum í Stoðum hf. og sala á hlutum í Reitum hf.
- 14.10.2011 10:21Afkoma Horns á þriðja ársfjórðungi 2011
- 26.09.2011 14:33Gengið frá kaupum Framtakssjóðs Íslands á 49,5% hlut í Promens hf.
Nánar um Horn
Fjárfestingarstefna | Stjórn | Skipurit | Samþykktir | Fyrirvarar
