Fréttir
Promens hefur lokið endurfjármögnun
Promens gekk nú í desember frá endurfjármögnun samstæðunnar að upphæð 170 milljónir Evra (isk. 27 milljarðar). Um er að ræða fjölmyntalán til 5 ára í samstarfi við aðal viðskiptabanka Promens, DnB NOR og NORDEA.
Samhliða þessu var gengið frá endurfjármögnun á láni hjá Landsbankanum, sem er viðskiptabanki Promens á Íslandi að upphæð 6 milljónir Evra (uþb. isk 1 milljarður) til 5 ára.
“Góður árangur hefur náðst í að styrkja rekstrargrundvöll Promens á árinu sem er að líða” segir Jakob Sigurðsson forstjóri Promens. “Mikill viðsnúningur hefur orðið á rekstrinum frá samdráttarárinu 2009 og útlit er fyrir góða rekstrarafkomu á árinu 2011. Þessi fjármögnunarsamningur við helstu viðskiptabanka Promens, ásamt kaupum Framtakssjóðs Íslands á 49,5 prósent hlut í félaginu í September, endurspegla traust þessara aðila á fyrirtækinu og sýna glöggt þær væntingar sem fjármálastofnanir og fjárfestar hafa til félagsins. Við munum leggja okkur fram við að standa undir þeim væntingum. Þessir samningur eru sérstaklega ánægjulegir og mikilvægir í ljósi þess umróts sem nú ríkir fjármagnsmörkuðum” segir Jakob.
- 14.05.2012 15:33Landsbankinn eflir starfsemi Landsbréfa hf. með færslu eignasafns Horns hf. til félagsins
- 24.04.2012 11:04Breytingar á stjórn Horns
- 16.04.2012 14:07Afkoma Promens á árinu 2011
- 12.04.2012 13:56Promens selur frá sér verksmiðju í Frakklandi
- 23.03.2012 11:23Afkoma Horns á árinu 2011
- 06.01.2012 10:47Promens hefur lokið endurfjármögnun
- 30.12.2011 16:29Fjölgun hluthafa Eyris Invest ehf.
- 30.12.2011 13:36Eyrir Invest tryggir fjármögnun til lengri tíma
