Fjárfestingarstefna
Horn er alhliða fjárfestingarfélag sem fjárfestir í fyrirtækjum og skráðum sem óskráðum fjármálagerningum tengdum þeim. Miðað er við að eignasafnið sé vel dreift og að hlutur erlendra verðbréfa sé að jafnaði ekki minna en fjórðungur fjárfestinga félagsins.
Að jafnaði mun Horn vera minnihlutafjárfestir í þeim verkefnum sem félagið tekur þátt í, en í nánu samstarfi við meðfjárfesta sem búa yfir sérþekkingu á atvinnugreininni.
Þegar við á, er Horn jafnframt umbreytingarfjárfestir, þar sem Horn beitir áhrifum sínum og fjárhagslegum styrk til að styrkja og umbreyta fyrirtækjum sem það er hluthafi í, enda auki það virði fjárfestinganna fyrir hluthafa Horns. Horn fjárfestir eingöngu í fyrirtækjum með nokkurra ára rekstrarsögu sem skila jákvæðum rekstrarhagnaði.
Með stöðugu endurmati á samsetningu fjáreigna Horns og með sveigjanlegum fjárfestingartíma, er leitast við að hámarka virði fjárfestinga Horns.
