Fréttir

26.10.2011 13:20

Kaup á hlutum í Stoðum hf. og sala á hlutum í Reitum hf.

Horn hefur keypt helming þess eignarhluta sem Landsbankinn hf. átti í Stoðum hf. Um er að ræða alls 795.329.124 A hluti og 4.150.000.000 B hluti sem svarar til 6,7% af útgefnum A hlutum og rúm 42,5% af útgefnum B hlutum. Kaupverð hefur að fullu verið greitt og var það að hluta til gert með sölu Horns á öllum eignarhluta félagsins í Reitum hf. til Landsbankans hf., en þar var  um að ræða 1.973.567 hluti í Reitum hf. eða sem svarar til 29,6% af hlutafé Reita hf.

Back

Fréttasafn

RSS