Fréttir
17.11.2011 12:03Horn selur í Eyri Invest
Horn hefur selt 13,75% hlut í Eyri Invest ehf. til Landsbankans. Söluverðið er jafnt bófærðu virði Eyris þann 30. september 2011 og hefur því engin rekstraráhrif á Horn eða afkomu Landsbankans. Eftir þessi viðskipti á Horn 13,75% hlut í Eyri Invest ehf.
Fyrirhuguð er skráning Horns á markað á næstu vikum. Undirbúningur að skráningu er langt kominn og hluti hennar felst í tilfærslum á eigum Horns til Landsbankans til að tryggja gott jafnvægi í eignum félagsins. Meðal þeirra eigna sem seldar hafa verið til Landsbankans að undanförnu eru 29,6% hlutur í fasteignafélaginu Reitum hf. og 13,75% hlutur Eyrir Invest ehf. sem báðar voru seldar til Landsbankans á bókfærðu virði Horns eins og það var þann 30. september síðastliðinn. Þessar tilfærslur hafa engin áhrif á afkomu Horns eða Landsbankans. Horn seldi auk þess 3,8% hlut í Össuri hf. til Landsbankans á markaðsverði en einnig hefur Horn keypt eigin hluti að andvirði 9 ma.kr. af Landsbankanum.
Fréttasafn
- 06.01.2012Promens hefur lokið endurfjármögnun
- 30.12.2011Fjölgun hluthafa Eyris Invest ehf.
- 30.12.2011Eyrir Invest tryggir fjármögnun til lengri tíma
- 18.11.2011Breytingar gerðar á stjórn Horns
- 17.11.2011Horn selur í Eyri Invest
- 26.10.2011Kaup á hlutum í Stoðum hf. og sala á hlutum í Reitum hf.
- 14.10.2011Afkoma Horns á þriðja ársfjórðungi 2011
- 26.09.2011Gengið frá kaupum Framtakssjóðs Íslands á 49,5% hlut í Promens hf.
