Fréttir

18.11.2011 17:42

Breytingar gerðar á stjórn Horns

Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á stjórn Horns fjárfestingarfélags hf. Guðrún Ragnarsdóttir sagði sig úr stjórninni samhliða tilnefningu hennar í stjórn Bankasýslu ríkisins og Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans hefur einnig sagt sig úr stjórninni með það fyrir augum að draga úr beinum tengslum Landsbankans og Horns.

Frans Páll Sigurðsson, framkvæmdastjóri Fjármála í Landsbankanum er því eini fulltrúi bankans í stjórn Horns en fjórir eru óháðir; þau Ragnhildur Geirsdóttir, Guðrún Björg Birgisdóttir, Hilmar Ágústsson og Sigurbjörn Jón Gunnarsson sem gegnir stjórnarformennsku. Þá hefur Landsbankinn tilnefnt Bergþór Björgvinsson sem varamann í stjórn Horns.

Fyrirhuguð er skráning Horns á markað á næstu vikum. Undirbúningur að skráningu er langt kominn og hluti hennar felst í tilfærslum á eigum Horns til Landsbankans til að tryggja gott jafnvægi í eignum félagsins. Meðal þeirra eigna sem seldar hafa verið til Landsbankans að undanförnu eru 29,6% hlutur í fasteignafélaginu Reitum hf. og 13,75% hlutur Eyrir Invest ehf. sem báðar voru seldar til Landsbankans á bókfærðu virði Horns eins og það var þann 30. september síðastliðinn. Þessar tilfærslur hafa engin áhrif á afkomu Horns eða Landsbankans. Horn seldi auk þess 3,8% hlut í Össuri hf. til Landsbankans á markaðsverði en einnig hefur Horn keypt eigin hluti að andvirði 9 ma.kr. af Landsbankanum.

Til baka

Fréttasafn

RSS