Fréttir
30.12.2011 16:29Fjölgun hluthafa Eyris Invest ehf.
Eyrir Invest ehf. hefur í dag ákveðið að auka hlutafé félagsins um
tæp 10% með sölu á 101 milljón nýrra hluta á genginu 24,25. Heildarútgefið
hlutafé eftir aukningu er 1.108.681.220 hlutir að nafnverði, hver hlutur jafngildir
1 krónu. Kaupandi hins nýútgefna hlutafjár er Lífeyrissjóður verzlunarmanna.
Með útgáfu nýs hlutafjár eykst fjárfestingargeta Eyris Invest.
Samhliða hlutafjárútgáfunni hefur Eyrir stofnað sjálfstætt félag um
fjárfestingar í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum; Eyrir sprotar slhf. Eyrir
sprotar munu legga megináherslu á að styðja efnileg útflutningsfyrirtæki til
vaxtar og virðissköpunar.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyrir Invest:
„Við fögnum innkomu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna í hluthafahóp Eyris
Invest. Eyrir styður iðnfyrirtæki til vaxtar á alþjóðlegum mörkuðum. Eyrir er
kjölfestufjárfestir í Marel með 36% hlut auk þess að eiga 17% hlut í Stork BV
sem á og rekur iðnfyrirtækin Stork Technical Services og Fokker Technologies.
Eyrir hefur einnig stutt önnur framúrskarandi fyrirtæki á borð við Össur til
vaxtar á síðustu árum. Með auknum fjárhagsstyrk og stofnun Eyris sprota
skapast ný tækifæri til áframhaldandi fjárfestinga í efnilegum fyrirtækjum.“
Innkoma Lífeyrissjóðs verzlunarmanna er mikilvægt skref til að
breikka og stækka hluthafahóp Eyris og þar með styrkja verðmyndun og auka
seljanleika á hlutabréfum félagsins. Stofnendur og kjölfestueigendur Eyris eru
Þórður Magnússon og Árni Oddur Þórðarson sem fara með samtals rúmlega 34%
eignarhlut eftir hlutafjáraukninguna.
Fréttasafn
- 06.01.2012Promens hefur lokið endurfjármögnun
- 30.12.2011Fjölgun hluthafa Eyris Invest ehf.
- 30.12.2011Eyrir Invest tryggir fjármögnun til lengri tíma
- 18.11.2011Breytingar gerðar á stjórn Horns
- 17.11.2011Horn selur í Eyri Invest
- 26.10.2011Kaup á hlutum í Stoðum hf. og sala á hlutum í Reitum hf.
- 14.10.2011Afkoma Horns á þriðja ársfjórðungi 2011
- 26.09.2011Gengið frá kaupum Framtakssjóðs Íslands á 49,5% hlut í Promens hf.
