Fyrirvarar
Upplýsingar birtar á vef þessum eru byggðar á heimildum sem Horn Fjárfestingarfélag hf. (Horn) telur áreiðanlegar á þeim tíma þegar þær eru skráðar á vef félagsins. Horn getur þó ekki ábyrgst að þær séu allar réttar, auk þess sem forsendur geta breyst án þess að vefurinn sé uppfærður samhliða í ljósi slíkra breyttra forsendna. Þá kunna upplýsingar og skoðanir þær sem fram koma að breytast án fyrirvara.
Upplýsingar sem birtar eru á vef Horns eru fyrst og fremst birtar þar til kynningar á félaginu og fela á engan hátt í sér ráðleggingar eða hvatningu til þriðja aðila, hvort heldur sem er einstaklinga eða lögaðila, um kaup eða sölu tiltekinna fjármálagerninga og bera notendur vefsins einir ábyrgð á þeim fjárfestingaákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinga sem birtar eru á vefnum. Horn ber því ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast beint eða óbeint af notkun á vef félagsins eða þeim upplýsingum sem þar eru birtar. Þá ber Horn ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem rekja má til þess að ekki er hægt að nota vefinn, um skemmri eða lengri tíma.
Horn á höfundarrétt á öllum þeim upplýsingum sem fram koma á vef félagsins, nema annað sé sérstaklega tekið fram eða leiða megi af eðli máls. Skriflegt samþykki Horns þarf til að endurbirta upplýsingar sem fram koma á vef félagsins, dreifa þeim eða afrita þær. Hvorki skiptir máli hvers eðlis þær upplýsingar eru né í hvaða tilgangi ætlunin er að endurbirta þær, afrita þær eða dreifa þeim.
